|
|
25.11.2006 18:27:04 / siljarut
.....eða búin að færa mig um set
http://siljarut.bloggar.is
»
30.05.2006 21:01:08 / siljarut
Þetta er svo dæmigert fyrir mig..... Elsa systir hans Hrafns kom
hérna í vikunni og bað mig um að stytta fyrir sig tvennar buxur.
Auðvitað var það ekkert mál, en ég er náttúrulega ekki búin að því
enn svo í kvöld herti ég upp hugan og ætlaði aldeilis að klára
þetta. Mér til mikillar mæðu komst ég að því, eftir að hafa grafið
upp saumavélina mína, að ég átti ekki svartan tvinna. Mín ætlaði að
redda því í hvelli og skaust út í búð en hvergi fékk ég tvinna, ég
hata 10-11 en ég hata Krónuna meira. Var ég búin að minnast á það
að þetta eru óléttubuxur, ég klára þetta örugglega
aldrei fyrr en Elsa er búin að eiga 
Annars er ég bara í góðu skapi þessa daganna, það er fínt í
vinnunni, verður reyndar bara betra og betra með hverjum
deginum. Morguninn byrjar á hverjum degi hjá mér á því að
setja súpu og brauð í svona fimmhundruðogsextíu bakka, með
tveimur lítháenskum konum, (það er ekki eins slæmt og það
hljómar, það er alla veganna skárra en að tína upp
sígarettustubba fyrir Orkuveituna). En svo fer restin af deginum í
skemmtilegri hluti, eins og fara upp á Hellisheiði til að
vinna í mötuneitinum í virkjunni sem verið er að koma upp
þar. Og þar sem ég er búin að vinna klukkan fjögur, alla
veganna ennþá, þá hef ég allan tíman í heiminum til að gera
eitthvað skemmtilegt með Krummanum mínum.
Jæja þangað til næst, verið nú dugleg að kommenta hjá mér,
annars verð ég svo sorgmædd, bið ég að
heilsa 
»
29.05.2006 22:13:51 / siljarut
jæja elskurnar mína...... það kemur ný færsla á morgun, í kvöld
hefur letin tekið við 
»
25.05.2006 19:57:52 / siljarut
Kostningaloforð, kostningaloforð,
kostningaloforð......................
Ég er alveg komin með upp í kok, þessar stöðugu auglýsingar
frambjóðendanna, sem hafa aukist gríðalega nú í vikunni, væru
kannski allt í lagi ef þær væru ekki svona hrikalega
væmnar og fullar af hræstni, ég þarf ekki að taka dæmi um þetta því
þið hljótið að kannast við það sem ég er að tala
um. Látið nú ekki
glepjast af girnilegum gilliboðum og loforðum um
betri framtíð, þau eru einfaldlega allt of langt frá hinum
raunverulega heimi til að geta nokkurntíman
ræst.
»
18.05.2006 18:17:59 / siljarut
.........hún hlýtur að komast áfram
»
18.05.2006 18:12:56 / siljarut
jæja gæskurnar, þá er komið að því, evróvisíon er eftir
klukkutíma. hvernig ætli henni silvíu okkar eigi nú eftir að ganga,
það hefur reyndar verið umdeilt upp á síðkastið hvort hún sé
okkar eða ekki, ég er hrædd um að það séu ansi margir sem hafi
afneitað henni í vikunni. en mér er sama um það, ég er viss um að
hún værði klikkað flott. ég þori nú eiginlega ekki að vera vongóð,
því þá verð ég svo afskaplega sorgmædd ef við komumst ekki áfram,
en samt..... allt gæti gerst
þetta kemur allt í ljóst 
»
12.05.2006 10:26:03 / siljarut
Ég trúi bara ekki hvað það er
mikið pláss í herberginu mínu og bara í íbúðinni allri, en eins
og glöggir lesendur vita hef ég verið að taka til hjá mér,
endurskipulegga og HENDA.
Ég á við þann vanda að stríða
að ég á voðalega erfitt með að henda, skiptir ekki máli hvað það
er, allt frá uppþornuðum pennum til útbrenndra kertastubba eða
jafnvel eldgamalla útslitinna skópara. Afleiðingar þessarar
hegðunnar minnar eru að hver krókur og kimi eru fullir af
einhverju drasli sem enginn notar. Skókassar eru gott dæmi,
mér er það algjörlega ófært að henda nýjum skókössum, sem eru
reyndar frekar fátíðir á mínu heimili, sem gerir mér ef til vill
enn erfiðara fyrir, en ég tel mér alltaf trú um að ég
geti nú örugglega notað þá undir eitthvað einhverntíman, sem er
reyndar alveg rétt, en af fenginni reynslu er ég nú loksins að átta
mig á því að ég stafla þeim yfirleitt bara upp, tómum eða fullum af
ónothæfu drasli, sem mætti henda, þar sem stærsta hlutverk
þeirra verður að safna ryki. Ég er nú enginn sálfræðingur,
en mig grunar að vandi minn felist í því að ég sé notagildi í
öllu, og mér þykir einfaldlega allt of vænt um það sem ég
eignast til að henda því strax, ég fæ mig bara ekki til
þess. Samt skortir mér als ekki ást
og/eða umhyggju í hinum andlega heimi, ég verða bara
að trúa, vegna ástands míns, á ástina í hinum hlutbundna
líka. 
Eins og gefur að skilja á ég því
sérlega efritt þessa daganna, það er ekki á hverjum degi sem maður
hendir ástinni sinna á sorphauganna, en ég er sterk og læt
ekki ástarsorgina buga mig.
»
10.05.2006 10:02:26 / siljarut
gleymdi að mynna ykkur öll á að kjósa og þá
auðvitað að kjósa rétt 
X-N
»
10.05.2006 09:46:02 / siljarut
þá er þessum vetri lokið hjá mér, síðasta
prófið í gær og ég því tilbúin fyrir sumarið í kvöld er
síðasta vaktin mín hjá póstinum og á laugadaginn byrja ég í nýju
vinnunni.
ég verð nú að vera sannur íslendingur og ræða
veðrið..... það er búið að vera alveg magnað að undanförnu.
ótrúlegur hiti þrátt fyrir þetta mistur sem við höfum yfir
okkur, hana orsakar víst einhver kolabrennslumengun frá
austur-evrópu, skilst mér. mér sýnist hún ætli að staldra
eitthvað við, alla veganna virtist hún ekkert á förum í
morgun.
ég hef sem sagt verið að pakka
vetrinum niður síðast liðnu daga, eða svona á milli
prófa, koma skóladótinu úr augnsýn og þess háttar. þeir sem
hafa komið í kjallarann á laugarásvegi vita að það er nú ekki mikið
geymslupláss hér og þá koma búðir eins og ikea sér sérlega
vel eða eins og þeir segja "ertu að skipurleggja.....". mín
skellti sér bara í ikea og keypti þessa líka flottu kassa til
að moka dótinu niður í. þessa kassa þarf maður ekkert að vera
að fela á bak við sófa eða undir rúmi, því þeir eru svo
FLOTTIR þeir eru bara orðnir glæsileg viðbót á fábrotnum
húsbúnaði mínum 
það styttist óðum í að nýi fjölskyldumeðlimurinn
fari að líta dagsins ljós, elsabet er komin með myndarlega kúlu,
enda á hún að eiga í júlí, ég hlakka svo til, ég varð bara að koma
því á framfæri 
ég er búin að ákveða að fara í sagnfræði við hí
næsta vetur, sem endar vonandi með því að ég verð sagnfræðingur,
annars veit maður aldrei, í fyrra fór ég í lögfræði sem ég var að
vona þá að myndi enda með því að ég yrði lögfræðingur.... en
svo varð nú ekki, guði sé lof. þetta kemur allt í ljós fyrr en
síðar.
ætli ég láti þetta ekki bara duga í bili, þangað
til næst, bið ég að heilsa ykkur 
»
05.05.2006 08:47:57 / siljarut
í dag er nákvæmlega mánuður og einn
dagur síðan ég skriftaði hér síðast og auðvitað hefur ýmislegt
gerst á þeim tíma
kannski fyrir það fyrsta höfum við hrafn
eignast lítinn sætann kettling, gulan, hvítan og loðinn og fékk
hann nafnið týgri, aumingja mamma og pabbi fá engin barnabörn, bara
ketti, boga systir á tvo ketti og dagbjört einn.
í gær fór ég í tvö teiknipróf, annað var
frá kl. 09,00 til 11,30 en hitt frá kl. 13,00 til 17,00 . . . ég er
komin með ógeð af því að teikna, undanfarnar vikur hef ég ekki gert
neitt annað en að teikna og teikna til að klára möppur sem ég átti
að skila, sem ég og gerði auðvitað. Nú á ég bara eftir að fara í
hönnunarsögupróf og ég get ekki beðið eftir því byrja að læra undir
það, bara að lesa 
ótrúlegt að þessi vetur sé bara alveg að
verða búinn, hann fór nú allt öðruvísi hjá mér en var planað, en ég
sé ekki eftir neinu, búin að skemmta mér konunglega í iðnskólanum.
það verður svolítið skrítið að vera ekki í dalakjör í sumar, en
annars leggst sumarið bara ótrúlega vel í mig. ég er búin að skrá
mig á hraðlestrarnámsskeið og þar sem ég verð ekki að vinna á
kvöldin og um helgar finnst mér ég hafa allan tímann í heiminum til
að gera eitthvað skemmtilegt.
í dag ætla ég að taka til og pakka
skóladótinu niður, í kvöld er ég svo að fara að vinna og á morgun
ætlum við hrafn heim í búðardalinn. það er svo mikið drasl hérna á
laugarásveginum að mér veitir ekkert á því að fara að byrja svo
þangað til næst bið ég að heilsa
ykkur
(hæ pabbi )
»
04.04.2006 23:18:39 / siljarut
Elskurnar.....
Það er búið að vera brjálað að gera hjá mér síðan síðast en ég
lofa nýrri færslu mjög fljótlega 
»
02.04.2006 17:58:00 / siljarut
Ég fór í starfsviðtal á föstudaginn, eins og skarpir lesendur
muna ef til vill eftir. Ég veit nú ekki hvort það voru margir sem
voru búnir að sækja um þessa vinnu, en ég tel það nú ólíklegt þar
sem ég var ráðin á staðnum. Ég byrja mánudaginn 15 maí og vinn
til 15 ágúst. 
Þrátt fyrir að vera súperánægð yfir því að vera komin með vinnu
og að þurfa ekki að hafa meiri áhyggjur af því, var mál málanna
auðvitað Katie Melua tónleikarnir á föstudaginn. Þeir voru hreint
frábærir, ég á bara ekki orð til að lýsa hrifningu minni. Og ekki
skemmdi fyrir að Ragnheiður Gröndal var að hita upp fyrir hana, hún
var líka frábær að vanda. Hrannar sá um alla framkvæmd tónleikanna
og var því aðal maðurinn þarna og ég nýtti auðvitað aðstæður mínar
til fullnustu og fékk hann til að fara með Katie M. diskinn minn
til hennar eftir tónleikana og árita hann fyrir mig, það var
auðvitað ekkert mál fyrir hann, frekar en annað sem maður biður
hann um að gera, svo nú á ég áritaðann Katie
Melua disk Takk takk takk
Hrannar þú ert langbestur 
Annars hef ég bara verið að læra um helgina, veit ekki alveg
hvernig þetta blessast allt saman, en ég verð bara að trúa því að
það geri það 
En ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni og halda áfram að
læra 
Þangað til næst.... don´t worry be happy 
»
30.03.2006 21:20:22 / siljarut
jæja elskurnar mínar, hvað á ég að segja
ykkur í dag?
ég fór í klippingu í dag og er bara ánægð með
klippinguna.... nei ég lét ekki taka mikið, aðalega fyrir hrafn
samt, hann fær alltaf í magan þegar ég tala um að fara í klippingu,
hann er alltaf svo hræddur um að ég láti klippa mig stutt
svo hefur restin af deginum hjá mér farið í það að skrifa
ritgerð um volkswagen bjölluna, þetta er hönnunarsöguritgerð og því
legg ég aðaláherslu á hönnun hans og hönnuði, vissuð þið að árið
1932 teiknaði hitler skissu af bílnum sem telja má fyrstu hugmynd
af útliti bjöllunnar. sniðugt það, já...já... 
á morgun fer ég í stafsviðtal hjá höfðakaffi.
mer skilst að þar sé eldað fyrir hin ýmsu fyrirtæki út í bæ,
afraksturinn er svo settur í bakka og keyrður út. meira veit ég nú
eiginlega ekki. en já þetta er dagvinna og ég vona svo sannalega að
ég fái þessa vinnu, þá þarf ég líka ekki að leita meira. get nú
samt eiginlega ekki sagt að ég hafi leitað mikið. ég hringdi og fór
á nokkra leikskóla, hélt það vantaði alltaf fólk á þá en nei þar
var enga vinnu að fá, búið að fylla allar stöður. svo asnaðist ég
bara til að kíkja í smáauglýsingarnar í fréttablaðinu á
miðvikudagsmorgunin og sá þessa vinnu auglýsta þar. já og það hefði
ekki gerst ef hún fjóla kennari hefði ekki verið veik, ég fæ
yfirleitt ekki fréttablaðið og ég nenni yfirleitt ekki að skoða það
á netinu en af því ég var í eyðu þá ákvað ég bara að kíkja aðeins í
það 
helgardagskráin samanstendur af katie
melua, klára ritgerðina, teikna og teikna og teikna. já
þetta verður sennilega bara ágæt helgi, þrátt fyrir mikin
lærdóm 
en ég held ég láti þetta bara duga núna, er
eiginlega bara að spá í að hætta að læra í kvöld og fara
snemma í rúmið og glápa á sjónvarpið eða lesa.
þangað til næst don´t worry be
happy 
»
29.03.2006 11:29:43 / siljarut
Strax kominn miðvikudagur, það er ekki að
spyrja af því!
Ég er að gera lokaverkefni í einum áfanga sem á
að fjalla um mig, ótrúlega skemmtilegt viðfangsefni, eins og
þið getið ímyndað ykkur Alla veganna... við áttum að
notast við myndir og auðvitað er ég ekki með neinar myndir hérna í
bænum svo ég varð að fá mömmu og pabba til að senda mér
fjölskyldualbúmin með rútunni. Pakkinn kom í gærkveldi svo ég fór
eldsnemma í morgun niður á BSÍ og náði í hann. Svo er ég búin að
vera að fletta albúmunum í allan morgun og velja myndirnar sem ég
hef hugsað mér að nota, það er búið að vera ótrúlega gaman. Sumar
af þessum myndum hef ég ekki séð í mörg ár. 
Nú er ég farin að leita mér að sumarvinnu, hafði
hugsað mér að komast í dagvinnu, sem sagt ekki vaktavinnu, eins og
ég hef alltaf verið í . Mig langar að prófa að eiga alltaf frí á
kvöldin og um helgar. Ef einhver er með einhverjar hugmyndir, þá
endilega látið mig vita, ég er svolítið hugmyndasnauð. En það má
eiginlega vera hvað sem er.
Já ég held ég láti þetta bara duga í bili, en
þangað til næst verið hamingjusöm 
»
27.03.2006 10:01:21 / siljarut
Ég tók mig loksins til og lærði helling í gær, ætla líka að vera
dugleg í dag, en svo er ég aðalega að stóla á að vera dugleg í
páskafríinu, þar sem ég verð meiri partinn af því bara hérna í
bænum. Fékk feitt kvíðakast í morgun, fannst ég eiga eftir að gera
svo mikið áður en prófin skella á. Þetta þurfti endilega að poppa
upp í hausinn á mér um 5 leitið, sem þýðir að það var ekki mikið
sofið til alla veganna 6, en það er sá tími sem það tók mig að
sannfæra sjálfan mig að ég ætti ekki svo mikið eftir og það væri
als ekki yfirstíganlegt. Já svona er maður skrítinn, svo ætlaði ég
auðvitað aldrei að vakna í morgun, þegar ég þurfit þess.
Annars get ég ekki beðið eftir að skólanum ljúki, verð að
viðurkenna að það er komin námsleiði í kellinguna, það kemur nú
alltaf upp á hverju ári, svona þegar það fer að síga á seinni
hlutann, en þá er ekkert annað að gera en að herða á og taka góðan
endasprett.
Annars er það bara Katie Malua á föstudaginn, vona að
eftirvæntingin eftir þeim eigi eftir að lengja vikuna aðeins, því
mér veitir ekki af tímanum.
held ég láti þetta bara duga í bili, en þangað til
næst
»
Síður: 1 2
|
|